Hálönd Akureyri

SS Byggir ehf. byggir glæsileg orlofshús í Hálönd á metnaðarfullu svæði þar sem vönduð hönnun, traust mannvirki og skýr framtíðarsýn fara saman. Húsin eru hönnuð til heilsársbúsetu, með áherslu á endingargóð efni, vandaðar lausnir og faglega framkvæmd frá upphafi til loka.
Image

Hágæða orlofshús

Í Hálöndum hefur SS Byggir þegar afhent yfir sjötíu orlofshús til ánægðra viðskiptavina.

Til þess að fylgjast með söluframboði orlofshúsa í Hálöndum er hægt að skrá sig á póstlista með því að senda tölvupóst á ssbyggir(hjá)ssbyggir.is.

Í póstinum þarf að koma fram nafn, kennitala og símanúmer.

Image

Innréttingar og innihurðir

TAK-innréttingar og innihurðir eru í orlofshúsunum í Hálöndum. Innréttingarnar eru sérsmíði sem unnin er af starfsfólki SS Byggir á tæknivæddu verkstæði fyrirtækisins.
Image

Gluggar og hurðir

Allir gluggar í orlofshúsunum eru timbur-álgluggar. Gluggar og hurðir eru settir í eftir á. Gluggarnir eru smíðaðir úr furu en að utanverðu eru þeir klæddir áli. Timburhurðir eru í húsunum en svalahurðir eru rennanlegar úr áli. Tvöfalt verksmiðjugler frá viðurkenndum framleiðanda er í gluggunum og flyst ábyrgð þess áfram til kaupenda.
Image

Loftskiptikerfi með varmaendurvinnslu!

Sjálfstætt lofskiptikerfi er í öllum nýjum orlofshúsum. Loftskiptikerfið hitar ferskt loft með varma loftsins sem kerfið dregur út út húsunum. Tryggir jöfn og góð loftskipti allt árið um kring, óháð veðri og vindum. Bætir gæði og heilbrigði lofts verulega. Minnkar ryk. Lækkar rekstrarkostnað.

Innréttingarnar frá TAK eru smíðaðar í einni fullkomnustu trésmiðju landsins

Teikningar

Sérsniðnar teikningar unnar í nánu samráði við viðskiptavini fyrir markvissa hönnun.

Verðtilboð

Gagnsæ og nákvæm verðtilboð sem byggja á þínum þörfum og fyrirhugaðri útfærslu.

Framleiðsla

Vönduð framleiðsla innréttinga með áherslu á gæði, nákvæmni og endingargóð efni.

Uppsetning

Fagleg uppsetning þar sem allt er frágengið af kostgæfni og lokaútkoma í forgangi.

Nánari lýsing:

Loftskiptikerfi – sjálfstætt loftskiptikerfi með varmaendurvinnslu er í orlofshúsunum.

Gólfefni - öll gólf húsanna eru flísalögð með sterkum keramik-flísum með parketmunstri.

Innréttingar - sérsmíðaðar TAK-innréttingar og innihurðir eru í öllum húsunum. Fibo-plötur eru á veggjum baðherbergis. Uni-drain niðurfall er í sturtum.

Heitur pottur (með loki) er fulltengdur og tilbúinn til notkunar á verönd. Húsin eru einangruð að utan og klædd með viðhalds-litlum ál-klæðningum.

Ál-tré gluggar eru í húsunum. Snjóbræðslukerfi er lagt í stétt og sólpall. Malbikað bílastæði fyrir tvo bíla fylgir hverju húsi. Ítarleg handbók fylgir öllum orlofshúsunum.