
SS Byggir hefur fest kaup á um 28 hekt. af landi jörðinni Hlíðarenda ofan Akureyrar. Umrætt land liggur ofan bæjarhúsa Hlíðarenda og er því á hægri hönd ef ekið er upp Hlíðarfjallsveg. Er hugmyndin að þarna rísi orlofshús og síðar jafnvel frekari ferðaþjónusta. Hugmynda- og hönnunarvinna varðandi svæðið er komin vel í gang og á fundi skipulagsnefndar Akureyrar þann 7. júlí sl. var eftirfarnadi bókað:
1. Aðalskipulag Akureyrar 2005-2018. Hlíðarendi - breyting á nýtingu lands
SN100068
Erindi dags. 22.06.2010 frá Halldóri Jóhannssyni f.h. landeigenda, SS Byggis ehf og Akureyrarkaupstaðar, þar sem óskað er eftir að gildandi Aðalskipulagi Akureyrar 2005- 2018 verði breytt þannig að svæði í landi Hlíðarenda sem nú er skilgreint sem "óbyggt svæði" fái skilgreininguna "verslunar - og þjónustusvæði". Svæðið er um 28 ha, sjá afmörkun nánar á meðfylgjandi loftmynd. Halldór Jóhannsson mætti á fundinn og kynnti tillöguna. Meirihluti skipulagsnefndar felur skipulagsstjóra að leita umsagna hagsmunaaðila á svæðinu og að láta vinna tillögu að aðalskipulagsbreytingu í landi Hlíðarenda sem síðar verði lögð fyrir nefndina.
Auður Jónasdóttir óskar bókað: Ég hvet til að horft verði til heildarskipulags Hlíðarfjalls og Glerárdals, en að breytingar verði ekki gerðar á smápörtum eftir séróskum hagsmunaaðila.
Meðfylgjandi er kynningartexti um svæðið:
SS Byggir ehf kynnir hugmyndir að frístundabyggð við rætur Hlíðarfjalls!
Um er að ræða glæsileg orlofshús staðsett á draumastað
útilífsfólks með útsýni til allra átta
Hægt er að renna sér heim að húsunum frá skíðasvæði Hlíðarfjalls flesta daga vetrarins en einnig er örstutt í aðra afþreyingu allt árið um kring. Húsin eru aðeins í um 5 km fjarlægð frá miðbæ Akureyrar. Meðal afþreyingar á svæðinu má nefna:
· Skíðasvæðið Hlíðarfjall, paradís skíða- og brettafólks á Íslandi
· Akstursvæði KKA, félags torfæruhjóla- og vélsleðamanna á Akureyri
· Fyrirhugað akstursíþróttasvæði og ökugerði Bílaklúbbs Akureyrar
· Reiðhöll og keppnissvæði Hestamannafélagsins Léttis
· Æfingar- og keppnisaðstaða Skotfélags Akureyrar
· Glerárdalur og Súlur bjóða upp á endalausa möguleika fyrir göngugarpa, vélsleðafólk og aðra unnendur útivistar og náttúru
Lifðu lífinu lifandi og tryggðu þér frábæra dvöl fyrir alla fjölskylduna að Hlíðarenda!